ERLE2VL05 - Vatn og líf 3

Vatn og líf

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Áfanginn er hluti af Comeníusarverkefni sem skólinn er þátttakandi í ásamt skólum frá Þýskalandi, Ítalíu og Spáni Um er að ræða nemendaskipti sem styrkt eru af Evrópusambandinu. Þema Comeníusarverkefnisins er vatn, nýting vatns, skortur á vatni og fleira tengt þessari undirstöðu alls lífs á jörðinni. Í áfanganum bera nemendur saman aðstæður þessara landa hvað þetta varðar Unnin eru hópverkefni þar sem þemu og umfjöllunarefni eru tengd áður greindum þáttum. Auk þess kynnast nemendur hluta af menningu og náttúru landanna og skólamenningu sem einkennir hvort land fyrir sig. Hluti hópsins fer til Ítalíu þar sem nemendur kynnast UNICEF og ýmsum verkefnum þeirra, sérstaklega verkefni tengd vatni í þróunarlöndum. Nemendur setja sig inn í hvernig hjálpin er veitt og hvað þau geta gert til aðstoðar, og íhuga hvaða verkefni þau vilja styðja með þessu verkefni sínu. Nemendur gerast sjálfboðaliðar fyrir UNICEF og selja lokaafurð verkefnisins, dagatal, á götumarkaði í Verona.

Þekkingarviðmið

  • starfsemi UNICEF
  • mismunandi aðstoð sem hentar mismunandi hópum
  • hlutverki sjálfboðaliða í hjálparstarfi

Leikniviðmið

  • samvinnu og samhug
  • taka þátt í vinnustaðaheimsóknum og vettvangsferðum
  • vinna með fólki af öðru þjóðerni með ensku sem samskiptamál
  • kynna eigið land og þjóð fyrir fólki af öðru þjóðerni
  • eiga í hversdagslegum samskiptum við fólk af öðru þjóðerni
  • afla sér á margvíslegan hátt upplýsinga um annað land, þjóð þess og aðstæður
  • kynna sér menningu annars lands

Hæfnisviðmið

  • íhuga eigin hlutverk í að hjálpa þróunarlöndum
  • komast að niðurstöðu um hvaða verkefni þeir vilja styðja
  • skilja að aðrar þjóðir búa við aðrar aðstæður en þau sjálf
  • geta borið saman ólík lönd og þjóðir, menningu þeirra og ólíkar aðstæður vegna náttúrufars
  • koma þekkingu sinni og skilningi á framfæri á margvíslegan hátt
  • nýta kunnáttu sína í ensku í umræðum, vinnu með öðrum og kynningum
  • taka á móti gestum frá öðrum löndum og njóta þeirrar upplifunar, bæði sem einstaklingur og hluti af hóp.
Nánari upplýsingar á námskrá.is