SJÁV1SÚ02 - Sjávarútvegur

Sjávarútvegur

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Í áfanganum munu nemendur kynnast helstu nytjategundum við Ísland, fjölbreyttum störfum og fyrirtækjum er tengjast sjávarútvegi, ferðaþjónustu í sjávarútvegi, fá innsýn í sögu sjávarútvegs við Ísland, nýsköpun, tækni og verðmætum. Nemendur fara í heimsóknir til fyrirtækja, kryfja lífverur, heimsækja söfn, fá fræðslu frá fagaðilum og stofnunum og fara á veiðar.

Þekkingarviðmið

  • byggingu fiska
  • fjölbreyttum störfum í sjávarútvegi
  • mikilvægi sjávarútvegs fyrir Íslendinga

Leikniviðmið

  • lesa og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
  • tjá kunnáttu sína bæði munnlega og skriflega

Hæfnisviðmið

  • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefni áfangans og myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýninni hugsun
  • tjá sig um einstaka efnisþætti
  • beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrg á eigin námi og vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
Nánari upplýsingar á námskrá.is