TÖLV2TT02 - Tölvutæklun

tölvutæklun

Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja skoða tölvur og tækni frá öðru sjónarhorni, fortíð, framtíð og innanfrá. Farið er í hvernig fyrstu tölvurnar urðu til og hvert þær þróuðust og hvaða tækniframfarir áttu sér stað samhliða þeim. Framtíð tölvu og tækni skoðuð, hvaða áhrif mun tæknin hafa á okkur í framtíðinni og hvaða hlutir eru nú þegar komnir sem við höfum jafnvel ekki hugmynd um. Málefnið rætt útfrá vinnutækjum, heimilistækjum og leiktækjum. Nemendur taka fartölvu í sundur, smíða stýripinna, kynna sér vélbúnað sem er í boði bæði innanlands og utan.

Þekkingarviðmið

  • vélbúnaði sem er í boði í þeim tilgangi að setja saman tölvur frá grunni og gera sér hugmynd um tilgang hvers hluts og samhæfi þeirra
  • tilgangi þeirra eininga sem ein tölva stendur saman úr
  • hvað er hægt og hvað ekki í raunveruleikanum af því sem við sjáum í þáttum og bíómyndum

Leikniviðmið

  • setja saman sína eigin tölvu úr íhlutum eða skipt út því sem þeim langar í slíku tæki
  • tileinka sér upplýsingaöflun með þeim tækjum sem í kringum okkur eru og að sætta sig ekki við að vita ekki eða skilja hluti sem auðfinnanlegir eru við flestar aðstæður
  • smíða stýripinna úr prentplötunni Makey Makey
  • nota þau tæki og þá tækni sem er í kringum sig til að auka þekkingu sína

Hæfnisviðmið

  • að hugsa út fyrir ramman um hvaða möguleikar eru í boði þegar valið stendur um að nýta sér tæknina
  • vera opin fyrir að nýta sér tæknina og sjá framtíðina eins og hún stefnir í dag
  • hugmyndaflugið njóti sín og því villtari sem hugmyndirnar verða því betur er fólk að standa sig
  • verða virkir þátttakendur í upplýsinga- og tæknisamfélagi
  • nýta sér tæknina bæði til gagns og gamans
Nánari upplýsingar á námskrá.is