FORR2LF05 - Leikjaforritun 2

Leikjaforritun 2

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: æskilegt að nemendur hafi lokið amk 5 einingum í stærðfræði á 2. þrepi
Í áfanganum er stefnt að því að gera nemendur meðvitaða um óhefðbundnar aðferðir í verkefnavinnu. Farið verður í leikjaforritun í Alice, hvernig hægt er að nýta forritið til að tjá sig með öðrum hætti en reikningi eða rituðu máli. Til kennslu verða notuð myndbönd og sýnishorn af vef og textaleiðbeiningar. Lögð verður áhersla á frumleika og sjálfstæð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

  • grunnforritun
  • fjölbreyttum aðferðum við lausn verkefna
  • ólíkum möguleikum við tjáningu og úrlausnir verkefna

Leikniviðmið

  • nýta sér óhefðbundnar leiðir til tjáningar
  • leysa verkefni á óhefðbundinn hátt
  • vinna sjálfstætt og nýta hugmyndaflug í verkefnavinnu

Hæfnisviðmið

  • nýta óhefðbundin verkfæri til að koma þekkingu sinni til skila
  • blanda saman mismunandi aðferðum til verkefnavinnu
  • koma eigin frumleika til skila með þeim tólum sem notuð verða í áfanganum
Nánari upplýsingar á námskrá.is