FORR2LE05 - Leikjaforritun 1

Leikjaforritun 1

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: æskilegt að nemendur hafi lokið amk 5 einingum í stærðfræði á 2. þrepi
Farið verður í leikjaforritun í Alice, hvernig hægt er að nýta forritið til að tjá sig og segja sögur. Til kennslu verða notuð myndbönd og sýnishorn af vef og textaleiðbeiningar. Lögð verður áhersla á frumleika og sjálfstæð vinnubrögð. Einnig verða kenndar grunnlausnir við forritun í gegnum Codecademy

Þekkingarviðmið

  • hugarflæði við hugmyndavinnu
  • mikilvægi góðra skilgreininga á hugmynd og verkefni
  • grunnforritun

Leikniviðmið

  • virkja hugmyndaflugið
  • starfa í hóp þar sem virðing og jákvæð samskipti einkenna ákvarðanatöku
  • vinna sjálfstætt og nýta hugmyndaflug í verkefnavinnu
  • kynna eigin hugmyndir og verkefni

Hæfnisviðmið

  • blanda saman mismunandi aðferðum til verkefnavinnu
  • koma eigin frumleika til skila með þeim tólum sem notuð verða í áfanganum
  • hugsa lausnamiðað
  • skipuleggja starf í hópi þannig að kraftar hvers og eins nýtist og allir séu sáttir við sinn hlut
  • kynna eigin vinnu
Nánari upplýsingar á námskrá.is