Skapandi tónlist 2 á starfsbraut
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Áfanginn fjallar um tónlist, um hljóð, hrynjanda, laglínu og samhljóm, sem þroskandi og uppbyggjandi þátt í lífinu fyrir einstaklinginn og hópinn í heildina. Nemendur æfa mismunandi lög saman sem þau velja í sameiningu til að efla samvinnu og samkennd. Einstaklingurinn þjálfast í að hlusta á og heyra mismunandi tegundir tónlistar og að velja þau lög sem henta hópnum best til samspils. Hópurinn æfir lög saman og finnur leið til þess að allir meðlimir hópsins njóti sín sem best.
Þekkingarviðmið
- hvernig tónlist hentar hópnum best
- uppbyggingu laga
- samspili og samvinnu
Leikniviðmið
- samspili á útvöldum lögum
- hlusta og heyra tónlist
- samvinnu innan hópsins
Hæfnisviðmið
- spila valin lög með hópnum
- standa að tónleikum þar sem hann miðlar listrænum styrk sínum
- samvinnu svo allir í hópnum nýti hæfileika sína til hins ítrasta
Nánari upplýsingar á námskrá.is