FJÁR1FD05 - Fjármálalæsi daglegs lífs

Fjármálalæsi daglegs lífs

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er stefnt að því að gera nemendur meðvitaða um fjármál, peninga og hlutverk þeirra í daglegu lífi. Farið er í laun og frádrátt og hvert hann fer, rekstur heimilis og bíls, notkun greiðslukorta, gengi og gjaldeyri og fleira sem snertir fjárhagslegar skuldbindingar sem nemendur þurfa að takast á hendur. Einnig verður farið í heimilisbókhald og mikilvægi þess að halda utan um tekjur og gjöld. Fjölbreyttar kennsluaðferðir eru notaðar í áfanganum svo sem leikir, umræður og verkefnavinna, bæði einstaklings- og hópa. Markmið áfangans er að gera nemendur sjálfbjarga í raunverulegum aðstæðum.

Þekkingarviðmið

  • einföldum fjármálum daglegs lífs
  • lestri launaseðla og annarra fjármálatengdra skjala
  • tilgangi skatta og annars frádráttar
  • rekstri heimilis og bifreiðar

Leikniviðmið

  • reikna gróflega útborgun launa eftir skatt
  • gera sér grein fyrir daglegum kostnaði, t.d. fæði og húsnæði)
  • leita sér upplýsinga sem aðstoðar þá við nauðsynlega útreikninga

Hæfnisviðmið

  • gera sér grein fyrir mikilvægi peninga
  • skilja tilgang skatta og gjalda og hvernig þeir nýtast okkur
  • skilja mikilvægi þess að tekjur séu hærri en gjöld
  • tileinki sér ábyrgð á eigin fjármálum og átti sig á að tekjur og gjöld verða að standast á
Nánari upplýsingar á námskrá.is