LÝÐH1LD02 - Lýðheilsa 4 á starfsbraut

Lýðheilsa 4 á starfsbraut

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Kennslan fer að mestu fram inni í íþróttasal en einnig í ræktinni og svo þegar nær dregur vori verða kennslustundirnar einnig utandyra. Tímarnir verða fjölbreyttir þar sem farið verður í ýmsa leiki ásamt hinum ýmsu íþróttagreinum.

Þekkingarviðmið

  • nauðsyn þess að hreyfa sig reglulega
  • heilbrigðum lífsstíl sem inniheldur hreyfingu
  • að bera ábygð á heilsu sinni
  • skipulagningu æfingar (upphitun, aðalhluti, niðurlag)

Leikniviðmið

  • skipuleggja æfingatíma sinn (upphitun, aðalhluti og niðurlag)
  • iðka fjölbreytta grunnþjálfun og beita mismunandi þjálfunaraðferðum til þess
  • setja sér raunhæf hreyfimarkmið

Hæfnisviðmið

  • nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
  • nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu í daglegt líf eftir bestu getu
  • viðhalda eða bæta eigið líkamshreysti
Nánari upplýsingar á námskrá.is