FRUM1TS05 - Tröllaskagi, starfsbraut

Tröllaskagi, starfsbraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Nemendum kynnast afþreyingu í nærsamfélaginu á sviði menningar og lista, náttúru, íþróttum eða annarrar hreyfingar. Markmið áfangans er að örva sköpunarkraft og auka djörfung nemenda og dug til að kasta sér út í nýjar áskoranir þar sem útkoma er ekki fyrirfram gefin.

Þekkingarviðmið

  • helstu þáttum afþreyingar í nærsamfélagi
  • hugarflæði við hugmyndavinnu
  • mikilvægi góðra skilgreininga á hugmynd og verkefni
  • gildi þess að hugsa í lausnum

Leikniviðmið

  • virkja hugmyndaflugið
  • starfa í hóp þar sem virðing og jákvæð samskipti einkenna ákvarðanatöku
  • kynna eigin hugmyndir og verkefni

Hæfnisviðmið

  • hugsa lausnamiðað
  • gera verkáætlun sem hentar því verkefni sem hugmynd er að
  • skipuleggja starf í hópi þannig að kraftar hvers og eins nýtist og allir séu sáttir við sinn hlut
  • kynna eigin vinnu
Nánari upplýsingar á námskrá.is