ÍSLE1ÍE05 - Íslenska 5 á starfsbraut

Íslenska 5 á starfsbraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á að auka markvisst orðaforða nemenda og þjálfa lestrarfærni með því að lesa ýmiskonar rit, eyðublöð og gögn sem nemendur koma til með að nota í nánustu framtíð. Lögð verður áhersla á munnlega tjáningu þar sem nemendur taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína til umræðuefna og komast að niðurstöðu. Unnið verður áfram með ritun ýmiskonar texta og reynt að virkja ímyndunarafl nemenda með sögu- og ævintýragerð af ýmsu tagi.

Þekkingarviðmið

  • orðfæri sem notað er t.d. í atvinnuumsóknum, skattaskýrslu, leiðbeiningum ýmiskonar o.fl.
  • mikilvægi lestrar
  • mikilvægi þess að geta tjáð sig skýrt og gera grein fyrir skoðunum sínum
  • ritun mismunandi texta

Leikniviðmið

  • meðferð máls með auknum orðaforða og málskilningi
  • að lesa mismunandi texta sér til gagns
  • að tjá skoðanir sínar og geta rökrætt
  • ritun mismunandi texta við sitt hæfi

Hæfnisviðmið

  • lesa sér til gagns ýmsa texta, leiðbeiningar og eyðublöð
  • lesa sér til dægrastyttingar
  • tjá skoðanir sínar og geta komist að niðurstöðu í rökræðum
  • virkja ímyndunarafl sitt og getað rita einfalda texta og sögur
Nánari upplýsingar á námskrá.is