Starfsnám á vinnustað 5
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Starfsnám á vinnustað 4
Áfanginn er verklegur og fer námið fram á hinum ýmsu vinnustöðum í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð. Vinnan á starfsnámsstað er skipulögð í samráði við fulltrúa vinnustaðar. Starfsnámstímabilið stendur yfir alla önnina og er viðvera nemenda á starfsnámsstað einstaklingsbundin. Umsjónarmaður starfsbrautar hefur umsjón með starfsnáminu en stefnt er að því að nemendur vinni undir leiðsögn starfsmanns á vinnustað. Í áfanganum er lögð áhersla á stundvísi, vandvirkni, sjálfstæði, samviskusemi, heiðarleika og að nemendur þekki og fari eftir vinnureglum og helstu öryggisatriðum á vinnustað.
Þekkingarviðmið
- hvað það er að vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi
- því sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
- hvernig nýta beri lærða færni með því að ræða hana við aðra nemendur og bera saman við annað sem honum finnst skipta máli, t.d. áhugamál
- hvernig hann miðlar þekkingu sinni með fjölbreyttum og skapandi hætti í samræðu við aðra nemendur með margskonar hætti
Leikniviðmið
- geta tjáð sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt og vera verklega sjálfbjarga í daglegu lífi
- geta beitt skapandi hugsun í öllu starfi , vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
- hafa aflað sér þjálfunar í þeim aðferðum og verklagi sem nám á vinnustað hans krefst
- geta greint á milli mismunandi aðferða og milli mismunandi þátta í skipulagi verkferla
Hæfnisviðmið
- hafa skýra sjálfsmynd og gera sér grein fyrir hvernig hann getur hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt
- geta átt jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við annað fólk
- geta að hagnýtt sér þá hæfni sem hann hefur aflað sér hvort heldur sem er í frekara námi eða í daglegu lífi. Hann á að geta sýnt fram á almenna siðvitund sína og umburðarlyndi og á að hafa skilning á eigin getu
- geta miðlað þekkingu sinni og leikni á hagnýtan máta og sýnt þannig sköpunarmátt sinn, frumkvæði og hæfni til að tjá hugmyndir og skoðanir
- meta eigið vinnuframlag
Nánari upplýsingar á námskrá.is