SKTL3ST05 - Sígild tónlist í hinum vestræna heimi

Sígild tónlist í hinum vestræna heimi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: 5 einingar í skapandi tónlist á 3. þrepi, tónheyrn og tónfræði á 2. þrepi
Áfanginn miðar að því að gefa nemendum yfirlit yfir mismunandi stíla og stefnur klassískar tónlistar og miðar að því að opna augu nemenda fyrir tengingu hennar við nútímann. Áhersla er lögð á að nemendur kynni sér mismunandi stíla klassískrar tónlistar frá miðöld til dagsins í dag og helstu tónskáld hennar ásamt helstu verkum þeirra.

Þekkingarviðmið

  • sögulegri þróun klassískrar tónlistar
  • sögulegri tengingu við söng og hljóðfæraleik í klassískri tónlist
  • mismunandi stílum í klassískri tónlist
  • algengustu hljóðfærum og flutningsmáta klassískrar tónlistar
  • blöndun mismunandi tónlistastíla
  • mismunandi form sönglaga og tónverka
  • notkun og samsetnigu hljóðfæra við flutningi á tónverkum
  • mismunandi nálgun höfunda við sköpun klassískrar tónlistar
  • samfélagslegu hlutverki klassískrar tónlistar í gegnum aldirnar

Leikniviðmið

  • beita skapandi hugsun
  • þekkja helstu tónskáld og tónverk þeirra
  • geta tjáð sig um ólíkar tegundir klassískrar tónlistar, setja fram hugmyndir og bregðast við viðmælendum

Hæfnisviðmið

  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
  • geta greint og tjáð sig um mismunandi stíla klassískrar tónlistar og geti sett fram hugmyndir sínar
  • taka virkan þátt í umræðu um efnið, setja fram skoðun sína af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi
Nánari upplýsingar á námskrá.is