TILV1MN05 - Tilveran, matreiðsla og næring

Tilveran, matreiðsla og næring

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Áfanginn er þrískiptur þar sem nemendur kynnast og þjálfa grunnþætti í matreiðslu fyrir heimili. Í áfanganum er farið í notkun á helstu tækjum í eldhúsi, einnig á hnífum og smááhöldum sem notuð eru við matreiðslu. Áhersla er lögð á sígildar undirstöðuaðferðir í matreiðslu s.s. suðu, steikingu og bakstur. Einnig meðferð á algengu hráefni: grænmeti, ávöxtum, fiski, kjöti, lyftiefnum og kornvöru til baksturs. Nemendur kynnast borðbúnaði og notkun hans og fá þjálfun í borðlagningu og frágangi. Fjallað er um vinnuskipulag, mikilvægi hreinlætis og næringar samhliða verklegri kennslu. Áhersla er lögð á að nemendur sýni samvinnu, tillitssemi og stundvísi.

Þekkingarviðmið

  • fjölbreyttum störfum við matreiðslu
  • grunnmatreiðslu- og bakstursaðferðum
  • meðhöndlun fjölbreyttra hráefna
  • nauðsyn hreinlætis við matreiðslu
  • mikilvægi hollrar næringar

Leikniviðmið

  • beita grunnatriðum við eldamennsku og bakstur
  • þekkja hollt mataræði
  • geta vegið og metið kosti og galla vöru út frá næringargildi hennar

Hæfnisviðmið

  • skilja og meta hversu miklu getur munað á magni fæðu sem hægt er að borða til að fylla orkuþörfina eftir því hvaða matvæli eru valin
  • þekkja mikilvægi góðs mataræðis
  • elda og baka einfaldan og hollan heimilismat og brauð
  • tileinka sér almennt hreinlæti við alla matargerð
Nánari upplýsingar á námskrá.is