TILV1TS05 - Tilveran, sjálfsmynd
Tilveran, sjálfsmynd
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur hafa þannig að þeir verði færir um að lifa sjálfstæðu, heilbrigðu og innihaldsríku lífi.
Þekkingarviðmið
- grunnstarfsemi líkamans
- meðgöngu (Hvernig þau urðu til)
- hreinlæti
- góðri tannhirðu
- hollu mataræði
- hollri hreyfingu
- andlegri heilsu
- skaðsemi reykinga og vímuefna
Leikniviðmið
- koma fram við líkama sinn og heilsu af virðingu
- þekkja hollt mataræði
- greina á milli hollra og óhollra lífshátta
Hæfnisviðmið
- gera sér grein fyrir hugtakinu unglingur og gera sér grein fyrir helstu breytingum unglingsáranna
- verða meðvitaðri um að breytingar á líkamsstarfsemi kalla á aukna líkamshirðingu og geti brugðist við því
- skilja nauðsyn hreinlætis og umhirðu eigin líkama
- þekkja mikilvægi góðs mataræðis
- þekkja mikilvægi hreyfingar
- öðlast betri skilning á hugtakinu tilfinningar og þekki orð og hugtök sem lýsa tilfinningalegu ástandi
- þekkja meginreglur í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar á námskrá.is