UPPD1US05 - Hagnýt upplýsingatækni á starfsbraut

Hagnýt upplýsingatækni á starfsbraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum eru kennd undirstöðuatriði í notkun á tölvum og upplýsingatækni. Lögð er áhersla á að nemendur læri á þau verkfæri sem notuð eru í kennslu, læri að skipuleggja sig í námi og læri að nýta sér internetið til gagnaöflunar. Nemendur fá þjálfun í algengustu verkfærum, svo sem ritvinnslu, tölvupósti og töflureikni, meðferð heimilda, geymslu gagna, myndbandsgerð og fleira. Einnig verður farið í samskiptareglur á internetinu.

Þekkingarviðmið

  • verkfærum sem nýtast í námi
  • internetinu og notkun þess
  • tölvupósti
  • heimildanotkun

Leikniviðmið

  • nota netið til upplýsingaöflunar
  • nota tölvupóst til að vera í samskiptum við vini og annað fólk
  • halda utan um gögn og skrár á skipulagðan hátt
  • nota ritvinnsluforrit og helstu aðgerðir til að búa til texta
  • búa til margmiðlunarverkefni svo sem myndbönd og hljóðskrár

Hæfnisviðmið

  • vera óhræddur við að prófa sig áfram og læra meira á tölvur
  • geta unnið sjálfstætt og óstuddur í tölvum
  • halda utanum gögn og verkefni
  • nota tölvur við lausn verkefna með opnum og jákvæðum huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is