ENSK1HE05 - Hagnýt enska á starfsbraut

Hagnýt enska, starfsbraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Meginmarkmið áfangans er að auka grundvallarfærni nemenda í tungumálinu og lögð sérstök áhersla á lestur, hlustun og skilning. Einnig verður mikil áhersla lögð á námstækni og að nemendur tileinki sér að notast við orðabækur, sér í lagi stafrænar. Unnið er að því að rfja upp og byggja ofan á þá kunnáttu og færni sem nemendur hafa þegar og unnið að því að byggja upp orðaforða tengdan áhugamálum og hugsanlegum framtíðar-starfsvettvangi. Námsefni verður útbúið með það í huga að það styrki nemendur og hvetji til sjálfstæðra vinnubragða.

Þekkingarviðmið

  • algengum orðum og orðasamböndum í töluðu og rituðu máli
  • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem enska er talað sem móðurmál/fyrsta mál og þekkja samskiptavenjur

Leikniviðmið

  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
  • lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni
  • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á
  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi

Hæfnisviðmið

  • fylgjast með frásögnum og erindum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er kunnuglegt.
  • tileinka sér aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum og geta dregið ályktanir af því sem hann les
  • lesa sér til ánægju og þroska skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
  • miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu, vonum og væntingum
  • skrifa um atburði, ímyndaða og raunverulega
  • skrifa um hugðarefni sín og áhugamál
Nánari upplýsingar á námskrá.is