Lestur, menning og skrif
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Áfangi á 1. þrepi eða grunnskólapróf
Áfanginn miðar að því að nemendur verði læsir á flóknari texta en áður og að þeir þjálfist í að tileinka sér grunnorðaforða ýmissa fræðigreina. Nemendur skulu getað tjáð hugsun sína varðandi ólík efni í ræðu og riti og beita rökum. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni þar sem þeir nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru með forritum, á vef eða í bókum.
Nemendur eflist í menningarvitund og kynnist ýmsum þáttum sem snerta menningu enskumælandi landa, sérstaklega Bretlands og Bandaríkjanna, þar sem fjallað verður bæði um venjur og siði sem eru ólíkir því sem gerist á Íslandi.
Undirstöðuatriði enskrar málfræði verða styrkt, sérstaklega þau atriði sem reynast íslenskum nemendum erfið, lesin verða bæði klassísk og ný bókmenntaverk ásamt lestri, hlustun og áhorfi á fjölbreytt fréttatengt efni af neti.
Þekkingarviðmið
- helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál í samanburði við Ísland og íslenska menningu
- ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
- þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
- helstu málfræðiatriðum í enskri tungu
- rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
- mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta
- röksemdafærslu eigin skoðana miðað við efni sem farið hefur verið í í tímum
Leikniviðmið
- lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
- beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
- greina og skilja málfarsmun á mismunandi málsvæðum, sérstaklega Bretlands og Bandaríkjanna
- tjá sig með skýrum hætti í ræðu eða riti um málefni sem hann hefur kynnt sér
- rita mismunandi gerðir texta, formlega og/eða óformlega
- beita viðeigandi hjálpargögnum við lestur og ritun ýmissa texta
Hæfnisviðmið
- skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
- tileinka sér efni/inntak margvíslegra texta og geta hagnýtt sér á mismunandi hátt
- taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
- tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
- skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
- nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is