LÍOL3FR05 - Líffæra og lífeðlisfræði

Framhaldsáfangi í líffæra- og lífeðlisfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 10 einingar í líffæra og lífeðlisfræði á 2. þrepi
Í fyrri hluta annarinnar vinna nemendur að valfrjálsu verkefni sem tengist líffæra- og lífeðlisfræði. Nemendur velja sér viðfangsefni sjálf og verkefnið er unnið út frá ákveðnum skilyrðum. Nemendur kynna verkefnið í síðustu viku fyrir miðönn. Í seinni hluta annarinnar eru eftirfarandi viðfangsefni tekin fyrir: Orkukerfi líkamans (ATP-PCr, oxunarkerfið og sykurrofskerfið) Áhrif umhverfisins á líkamann við þjálfun (þjálfun í hita, kulda og í hæð) Hormónastarfsemi kvenna á meðgöngu og við fæðingu Hjartað Beinagrindarvöðvar

Þekkingarviðmið

  • hver orkukerfi líkamans eru, hvernig þau virka og hversu mikið þau afkasta
  • hvaða áhrif þjálfun í mismunandi umhverfi hefur á líkamsstarfsemina
  • hvaða hormón tengjast meðgöngu og fæðingu og hvað hvert hormón gerir í líkamanum á þessu tímabili
  • uppbyggingu og hlutverki hjartans og hvernig það starfar annars vegar í hvíld og hins vegar við álag
  • byggingu beinagrindarvöðva, hvernig þeir dragast saman og hvernig þeir stækka við langvarandi álag

Leikniviðmið

  • meta hversu mikið hvert orkukerfi er í virkni við mismunandi álag og mismuandi tímalengdir
  • tengja líkamlegar breytingar kvenna á meðgönu og við fæðingu við hormón

Hæfnisviðmið

  • finna heimildir um viðfangsefnið á ensku
  • lesa og skilja heimildir um viðfangsefnið á ensku
  • meta gæði heimilda um viðfangsefnið
  • útskýra fyrir öðrum viðfangsefnið
  • taka þátt í umræðu um viðfangsefnið á uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is