Útivist og hreyfing
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Áfanginn er að mestu leyti verklegur og kynnir útivist sem hægt er að stunda þegar er auð jörð. Nemendur kynnast undirstöðuatriðum í klettaklifri, sigi, fjallahjólun, brimbrettareið, sjósundi, sjókajak, útieldamennsku og fjallamennsku. Mikil áhersla verður lögð á að nemendur verði sjálfstæðir í óbyggðum, geti metið aðstæður, t.d. breytt veðurskilyrði, með tilliti til öryggis og tekið skynsamar ákvarðanir varðandi t.d. leiðarval og notkun öryggisbúnaðar.
Þekkingarviðmið
- útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, td. fyrir gönguferðir, hjólreiðar, brimbrettareið og fl.
- náttúru Íslands og góðrar umgengni við hana
Leikniviðmið
- leggja mat á aðstæður í óbyggðum og beita þeim sérhæfða búnaði sem notaður er til útivistar
Hæfnisviðmið
- geta stundað útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, td. fyrir gönguferðir, skíðaferðir, hjólreiðar, brimbrettareið og fl.
- ferðast um óbyggðir Íslands á öruggan og ábyrgan hátt
- meta aðstæður og taka skynsamar ákvarðanir í samræmi við þær, sérstaklega ef breytingar verða á aðstæðum eins og t.d. breytt veðurskilyrði
- geta tekið þátt í upplýstri umræðu og rökræðum um málefni er tengjast útivist
- vera meðvitaður um umhverfi sitt, hafa lært að njóta þess, virða og nýta á skynsamlegan hátt með sjálfbærni í huga
- vera vel undirbúnir fyrir frekara nám einkum á sviði kennslu útivistar á háskólastigi
Nánari upplýsingar á námskrá.is