starfsbraut, úrganslist
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Áfanginn miðar að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna.
Áhersla er lögð á hugmynda- og tilraunavinnu þar sem unnið er í og með ólík efni og miðla auk þess sem farið verður í grunnatriði teikningar, form- og litafræði.
Unnið verður með efni sem alla jafna er hent og því gefið nýtt líf þannig að nemendur kynnast því að í myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er.
Þekkingarviðmið
- að myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er
- blöndun grunnlita í litatóna
- að hægt er að skapa raunveruleg verðmæti úr úrgangi
- vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum sinnar listgreinar
- mismunandi nálgun listamanna við listsköpun
- að miðla listsköpun sinni með því að sýna verk sín
Leikniviðmið
- beita skapandi hugsun
- blanda liti og litatóna
- skilningi á formum og uppbyggingu þeirra
- sjá möguleika í úrgangi sem öllu jafna er hent og gefa nýtt hlutverk
- beita mismunandi miðlunarleiðum í listsköpun sinni
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
Hæfnisviðmið
- era skapandi í hugsun
- skapa list úr úrgangi
- fullvinna hugmyndir undir leiðsögn kennara
- skapa eigin verk byggð á eigin listrænum styrk undir leiðsögn kennara
- vinna á persónulegan hátt með eigin hugmynd og útfæra hana í myndverki með tilliti til lita-, og formfræði og myndbyggingar
- standa að sýningu þar sem nemandinn miðlar listrænum styrk sínum
- tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um myndlist við ólíka viðmælendur
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
- meta eigið vinnuframlag
Nánari upplýsingar á námskrá.is