INNÁ1IS04 - Inngangur að náttúruvísindum, starfsbraut

Inngangur að náttúruvísindum, starfsbraut

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í þessum áfanga fer fram kynning á náttúruvísindum. Lögð verður áhersla á að nemendur læri að þekkja og skilja náttúruna og þau öfl sem að móta hana. Sérkenni íslenskrar náttúru, lífríki, jarðfræði og veðurfar verða tekin fyrir. Nemendur læra og þjálfast í algengum hugtökum eins og vegalengdum, metrakerfinu, hitastigi, rúmmáli, massa og eðlismassa. Lögð verður áhersla á að nemendur kynnist þessum atriðum með vettvangsferðum og verklegri kennslu. Nemendur læra einnig að afla sér upplýsinga á netinu og halda kynningar um námsefnið.

Þekkingarviðmið

  • algengustu fuglategundum á Íslandi og hvernig má þekkja þær
  • lífríki sjávar og helstu nytjategundir
  • hvar eldvirkni er á Íslandi og mögulegar afleiðingar eldgosa
  • hvar jarðskjálftar verða á Íslandi og mögulegar afleiðingar jarðskjálfta
  • landafræði Íslands
  • metrakerfinu og skilji samhengið milli, mm, cm, m og km
  • þyngd hluta og skilji samhengið á milli mg, gr og kg
  • rúmmáli kassalaga hluta og hverng hægt er að mæla það
  • rúmmáli óreglulegra hluta og hvernig hægt er að mæla það
  • eðlismassa hluta og hvernig hægt er að reikna hann út

Leikniviðmið

  • greina fugla og kunna að nota fuglavísa
  • nota landakort til að átta sig á staðháttum
  • lesa úr veðurspám og finna veðurspá fyrir ákveðna staði á www.vedur.is
  • mæla lengd á hlutum uppá mm, cm og m
  • breyta kílómetrum í metra
  • mæla þyngd á hlutum
  • breyta kílógrömmum í grömm og grömmum í kílógrömm

Hæfnisviðmið

  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
  • vinna í hóp til að auka skilning á fyrirbærum í náttúrunni
  • tengja fyrirbæri í náttúrunni við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi náttúrunnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is