SÁLF2ÍÆ05 - Íþróttasálfræði

íþróttasálfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að félagsvísindum
Í áfanganum verður farið yfir grunnatriði íþróttasálfræðinnar og þau tengd við annars vegar almenna sálfræði og hins vegar við aðrar aðstæður eins og vinnustaði, vinahóp og nám. Skoðuð eru ýmis áreiti sem hafa áhrif á afreksgetuna, fjallað um spennu og helstu spennuvalda ásamt slökun. Farið verður í aðferðir til að auka sjálfstraust og sjálfsmynd til að bæta árangur. Fjallað verður um muninn á einstaklings- og hópíþróttum og farið í áhrif félagslegra þátta á íþróttamanninn. Einnig verður leiðtoginn skoðaður. Í öllum atriðunum verður reynt að tengja þau einnig við aðrar aðstæður en íþróttaaðstæður, s.s. vinnuna, námið og vinahópinn.

Þekkingarviðmið

  • íþróttasálfræði og mikilvægi hennar í þjálfun og keppni
  • helstu atriðunum sem hafa áhrif á spennustig
  • einbeitingar- og hugarþjálfun
  • mikilvægi góðrar sjálfsmyndar og sjálfstrausts
  • tengslum áhugahvatar og frammistöðu
  • mikilvægi hvatningar í íþróttum

Leikniviðmið

  • nýta sér einbeitingar- og hugarþjálfun
  • finna leiðir til eflingar sjálfsmyndar og sjálfstrausts
  • hvetja á jákvæðan og uppbyggilegan hátt

Hæfnisviðmið

  • lesa aðstæður/atburði út frá sálfræðilegu sjónarhorni
  • geta beitt sálfræðiaðferðum í vinnu sinni, s.s. einbeitingar-, hugar- og skynmyndarþjálfun
Nánari upplýsingar á námskrá.is