NÁSA1NS05 - Náttúrusaga starfsbraut

Náttúrusaga

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Mikilvægt er að nemendur geri sér grein fyrir samspili manns og náttúru. Megintilgangur áfangans er að viðhalda og styrkja forvitni og áhuga nemendanna á náttúrunni og umhverfi sínu, kenna þeim að skoða hluti og fyrirbæri í náttúrunni og styrkja orðaforða þeirra og þekkingu á jörðinni og lífinu sem þar er að finna.

Þekkingarviðmið

  • tengslum manns og umhverfis
  • því að maðurinn er hluti af náttúrunni og lífsafkoma komandi kynslóða byggist á umgengi hans við náttúruna
  • hugtökunum fæðukeðja og fæðuvefur og þekkja mismunandi hlutverk lífvera í þeim
  • ljóstillífun og gildi hennar fyrir lífheiminn
  • tengslum lífvera innbyrðis og við annað umhverfi sitt
  • hvernig hreyfingar jarðar orsaka árstíðir og sjávarföll
  • hvernig atferli dýra hefur áhrif á lífsafkomu þeirra og hæfni í til að lifa og fjölga sér
  • að í öllum lífverum fer fram ákveðin starfsemi, svo sem hreyfing, næringarnám, úrgangslosun, vöxtur og æxlun
  • gera sér grein fyrir að líf myndast einungis af öðru lífi með kynlausri æxlun eða kynæxlun

Leikniviðmið

  • taka virkan þátt í gagnrýninni umfjöllun um málefni er snerta náttúru, umhverfi mannsins og samspil vísinda, tækni og samfélags
  • yfirfæra þekkingu, skilning og vinnubrögð í náttúrufræði á lausnir annarra verkefna hvort sem er innan skóla eða utan
  • virðingu fyrir náttúrunni

Hæfnisviðmið

  • gera sér grein fyrir að dýr nærast á öðrum lífverum
  • kynnast og fylgjast með hegðun dýra, svo sem æxlun, félagslífi, umönnun, fari, óðalshegðun og leikjum
  • átta sig á áhrifum árstíðabundinna breytinga á lífríki
  • gera sér grein fyrir að afkvæmi erfa eiginleika frá foreldrum sínum
  • þekkja manngert og náttúrulegt umhverfi, rata um það og kunna að njóta þess með útiveru
  • þroska með sér ábyrgðartilfinningu gagnvart sjálfbærri þróun þannig að hann geti lifað í samræmi við þá hugmyndafræði
  • geta útskýrt hugtökin fæðukeðja og fæðuvefur og þekkja mismunandi hlutverk lífvera í þeim
Nánari upplýsingar á námskrá.is