ÍÞJÁ3MÞ03 - Markviss íþróttaþjálfun

markviss íþróttaþjálfun

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: Engar
Nemendur þurfa að stunda markvisst og skipulega íþrótt sína 3-4x í viku undir handleiðslu þjálfara. Sérstök áhersla er lögð á liðleikaþjálfun (hreyfiteygjur) og fyrirbyggjandi æfingar

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð til að ná árangri
  • hvað líkamlegt form sé og hvernig það sé þjálfað markvisst og skipulega

Leikniviðmið

  • meta líkamlegt form sitt
  • meta kosti og galla sína sem íþróttamann í þeirri íþróttagrein sem þeir iðka

Hæfnisviðmið

  • nýta þjálfun sína sem best til að ná sem bestum árangri
Nánari upplýsingar á námskrá.is