fiskifræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að náttúruvísindum
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist helstu nytjategundum við Ísland m.a. flokkun þeirra, útliti, veiðum og afla. Þá er einnig farið í atferli tegunda, lífshætti og útbreiðslu.
Áfanginn er undirbúningur fyrir frekari sérhæfingu á fisktæknibraut.
Þekkingarviðmið
- stofnstærð og stofnstærðarþróun helstu nytjategunda við Ísland
- aflabrögðum helstu nytjategunda við Ísland
- veiðum á helstu nytjategundum við Ísland
Leikniviðmið
- bera kennsl á mikilvægustu nytjategundir sem finnast hér við land
- safna gögnum um nytjategundir og vinna með þau á viðeigandi hátt
- lesa og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
Hæfnisviðmið
- geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefni áfangans og myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýnni hugsun
- tjá sig um einstaka efnisþætti
- beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi og vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
Nánari upplýsingar á námskrá.is