Jákvæð sálfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 10 einingar í sálfræði á 2. þrepi (eða sálfræði og félagsfræði)
Jákvæð sálfræði er ný grein innan sálfræðinnar. Þeir sem leggja stund á hana beina athyglinni að heilbrigði, hamingju og ýmsu sem gerir daglegt líf innihaldsríkara fremur en að fást við vandamál og sjúkdóma. Áhersla er lögð á að greina hugsun, hegðun, tilfinningar og lífsstíl þeirra sem eru jákvæðir, hamingjusamir og njóta almennrar velgengni í lífinu eða á einstökum sviðum þess. Fjallað er sérstaklega um tengsl jákvæðra hugsana og jákvæðra athafna og möguleika þess að hækka hlutfall jákvæðni á kostnað neikvæðini í lífi sínu, svokallað jákvæðnihlutfall. Gerðar verða verklegar æfingar og nemendur kynnast eigin styrkleikum á kerfisbundinn hátt.
Þekkingarviðmið
- fræðigreininni jákvæðri sálfræði
- viðfangsefnum helstu fræðimanna greinarinnar
- aðferðum við að skipta út vondum hugsum fyrir góðar
- helstu tilfinningum sem stuðla að jákvæðri hugsun og athöfunum
- leiðum til að byggja upp hagmingjusamt líf með grósku og sköpun
Leikniviðmið
- greina gildi og áhrif eigin athafna og framgöngu fyrir fjölskyldu og vini
- greina eigin styrkleika og nýta þá til að bæta líf sitt
- nota athafnir á borð við hrós, greiða og góðverk til að auka vellíðan sína og annarra
- nota jákvæðar athafnir til að byggja upp sálfræðilegar og félagslegar bjargir
- skapa tilgangsríkt líf með þátttöku í athöfnum sem skipta aðra máli og þjóðfélagið í heild
Hæfnisviðmið
- nota sérstakar athafnir til að byggja upp jákvæðar tilfinningar
- hlú að jákvæðum tilfinningum
- auka og efla eigin styrkleika
- bregðast við neikvæðum hugsunum og tilfinningum
- auka jákvæðni og þar með vellíðan í daglegu lífi
Nánari upplýsingar á námskrá.is