Íslenska 2 á starfsbraut
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er lögð áhersla á að efla málfræðigrunn nemenda ásamt almennum lestri og lesskilningi. Unnið er að því að nemendur auki orðaforða sinn og málskilning og treysti kunnáttu sína á öllum sviðum lestrar, lesi fjölbreytta texta, bókmenntatexta á auðlesnu máli, ýmsa texta sem birtast í dagblöðum, tímaritum og á netinu. Nemendur fá einnig þjálfun í hlustun og ritun.
Þekkingarviðmið
- helstu grunnatriðum málfræðinnar
- mikilvægi lestrar og bókmennta
- mikilvægi hlustunar
- ritun mismunandi texta
Leikniviðmið
- meðferð máls með auknum orðaforða og málskilningi
- að lesa mismunandi texta sér til gagns
- hlustun og úrvinnslu hennar
- ritun mismunandi texta við sitt hæfi
Hæfnisviðmið
- greina einföld málfræðiatriði
- lesa bókmenntaverk og ýmsa aðra texta s.s. fréttir í dagblöðum og á neti
- hlusta á upplestur og ná inntakinu
- rita einfalda texta, sögur og ljóð
Nánari upplýsingar á námskrá.is