HETJ3HS05 - Hetjur og skúrkar

Hetjur og skúrkar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 10 einingar í íslensku á 2. þrepi
Í áfanganum „Hetjur og skúrkar“ er lögð áhersla á samþættingu ólíkra námsgreina eins og íslensku, erlendra tungumála og myndlistar. Um er að ræða þverfaglegan áfanga sem ætlað er að efla læsi, gagnrýna og skapandi hugsun sem höfð skal að leiðarljósi í öllu námi. Fjallað er um hugtökin „hetja“ og „skúrkur“ í víðu samhengi út frá kvikmyndum, myndlist og bókmenntum.

Þekkingarviðmið

  • fjölbreyttum orðaforða til að geta tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær í tengslum við umfjöllun um mismunandi viðfangsefni
  • mismunandi tegundum læsis og mikilvægi gagnrýnnar hugsunar
  • mismunandi samfélagslegum og menningarlegum aðstæðum

Leikniviðmið

  • tjá sig á skýran, gagnrýninn og skapandi hátt um þá þekkingu sem þeir öðlast í áfanganum
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við útfærslu sjálfstæðs lokaverkefnis
  • taka ábyrgan þátt í samræðum um samfélagslegar og menningarlegar aðstæður er koma fram í kvikmyndum, myndlist og bókmenntum

Hæfnisviðmið

  • efla læsi, gagnrýna og skapandi hugsun
  • beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta og myndefnis
  • átta sig á samfélagslegum skírskotunum og ná duldum boðskap og hugmyndum úr texta og myndefni
  • sýna þroskaða siðferðsvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
Nánari upplýsingar á námskrá.is