Íslenska 1 á starfsbraut
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er unnið með ýmsa grunnþætti íslenskunnar, svo sem lestur, lesskilning, ritun og tjáningu.
Í áfanganum er lögð áhersla á að kynna fyrir nemendum þau vinnubrögð sem viðhöfð eru í skólanum en námið fer mikið fram í gegnum tölvur. Unnið er að því að nemendur verði færir í alls kyns textavinnslu á tölvutæku formi og kynnist þeim möguleikum sem tölva og netið bjóða upp á. Nemendur lesa ýmsa texta sem birtast í miðlum á netinu og vinna með þá ásamt því að fá þjálfun í ritun og tjáningu.
Þekkingarviðmið
- þeim möguleikum sem tölva býður upp á til meðhöndlunar texta
- mismunandi miðlum á netinu
- ritun og framsetning texta í tölvutæku formi
- mikilvægi tjáningar
Leikniviðmið
- meðferð texta á tölvutæku formi
- að lesa mismunandi texta á netinu sér til gagns
- ritun mismunandi texta við sitt hæfi
- tjáningu
Hæfnisviðmið
- skila tölvuunnum verkefnum og senda rafrænt til kennara
- lesa ýmsa texta á netinu s.s. fréttir og fræðigreinar
- rita einfalda texta, sögur og ljóð
- tjá eigin skoðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is