Íþróttaþjálfun til náms
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: Engar
Nemendur þurfa að stunda markvisst og skipulega íþrótt sína 3-4x í viku undir handleiðslu þjálfara. Sérstök áhersla verður lögð á einstaklingsmiðaða þjálfun út frá æfinga- og keppnisálagi.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð til að ná árangri
- hvað líkamlegt form sé og hvernig það sé þjálfað markvisst og skipulega
- mikilvægi þess að æfa rétt út frá æfinga- og keppnisálagi
Leikniviðmið
- meta líkamlegt form sitt og hvernig æfingu eigi að iðka hverju sinni út frá æfinga- og keppnisálagi
- meta kosti og galla sína sem íþróttamann í þeirri íþróttagrein sem þeir iðka
Hæfnisviðmið
- nýta þjálfun sína sem best til að ná sem bestum árangri
Nánari upplýsingar á námskrá.is