ENSK3UH05 - Enska: Undirbúningur fyrir háskólanám

Undirbúningur fyrir háskólanám

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 10 einingar á 2. þrep í ensku
Auknar kröfur eru gerðar til sjálfstæðis nemenda í námi og hæfileika þeirra til að koma þekkingu sinni skýrt og greinilega frá sér í ræðu sem og riti. Ætlast er til að nemendur sýni frumkvæði og eigi auðvelt með að afla sér upplýsinga um tiltekin viðfangsefni tengd áfanganum sem og að þeir læri að nýta sér þau hjálpartæki sem þeir þurfa til ritunar og skilnings. Áfanginn miðar að því að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður og að þeir þjálfist í að tileinka sér sérhæfðari orðaforða tengdum þeim fræðasviðum sem þeir hafa hug á að leggja fyrir sig í háskólanámi. Nemendur skulu getað tjáð hugsanir sína skýrt og óhikað hvort heldur sem í ræðu eða riti og beita rökum máli sínu til stuðnings. Meginviðfangsefni áfangans eru því þjálfun í fræðilegum orðaforða og vinnubrögðum.

Þekkingarviðmið

  • þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
  • rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang, meginmál með afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
  • helstu aðferðum við að skipuleggja og skrifa fræðilegan texta á ensku
  • því hvernig meta má gæði heimilda

Leikniviðmið

  • lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
  • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni fræðilegs eðlis
  • lesa fjölbreyttar gerðir texta, sér í lagi fræðilega
  • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
  • tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
  • skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni

Hæfnisviðmið

  • beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónulegt, menningarlegt, félagslegt, fræðilegt og fjölmenningarlegt efni
  • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinagerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
  • skrifa texta með röksemdarfærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin
  • nýta sér nýjan orðaforða í ræðu og riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is