SKTL3BR05 - Bræðingur; Latin, Blues, Jass og hljóð-upptökukennsla
Blues, Bræðingur; Latin, Jass og hljóð-upptökukennsla
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 10 einingar í skapandi tónlist á 2. þrepi
Áfanginn miðar að því að opna augu nemenda fyrir spuna tónlist, jafnvel þótt þátttakendur hafi mjög ólíkan tónlistarlegan bakgrunn. Áhersla er á samvinnu í sköpun tónlistar en nemendum gefst líka færi á að vinna einstaklingsverkefni og fara sínar eigin leiðir. Sjálfir og í sameiningu munu nemendur þjálfast í að búa til sín eigin tónverk í upptökuforritum og síðar flytja tónverk sín fyrir áheyrendur sem hluta af lokaeinkunn.
Þekkingarviðmið
- einkennandi taktegundum
- almennum spunasmíðaaðferðum sem hann getur nýtt sér í sinni eigin tónlistarsköpun
- mismunandi vinnuaðferðum og uppsetningum við tónlistarsköpun í tölvum svo sem upptökuforritum sem hægt er að nýta sér við tónlistarsköpun
- mikilvægi þess að þora að steypa sér út í verkefni og hugmyndir án þess að óttast niðurstöðuna
- skölum og hljómum sem einkenna áfangann
- mikilvægi veraldarvefsins til kynningar á efni
Leikniviðmið
- beita skapandi hugmyndavinnu
- vinna tónverk frá hugmynd til frumflutnings
- vinna með öðrum í hópum, hljómsveitum og aðlaga vinnuaðferðir sínar að því umhverfi sem samvinnan á sér stað í
- skapa heilsteyptar laglínur undir einföldum hljómagöngum
- beita mismunandi nótnaskriftar- og upptökuforritum til tónsköpunar
- sýna frumkvæði og skapandi nálgun í listgrein sinni og beitt viðeigandi aðferðum við útfærslu verka
- tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigin verkferli og listrænar niðurstöður
Hæfnisviðmið
- öðlast sjálfstraust og sjálfstæði í þróun hugmynda og sýna áræðni við útfærslu þeirra og túlkun
- framleiða tónlist sér til yndisauka og getað flutt og miðlað henni
- nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við sköpun
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
- greina, tjá sig um og meta eigin verk og annarra af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi
Nánari upplýsingar á námskrá.is