Dægurlagatónlist: popp og rokk
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að listum, auk grunnþekkingar á tónfræðilegum hugtökum samkvæmt lýsingu á TFR - Fornámi í tónlist.
Áfanginn miðar að því að gefa nemendum innsýn á helstu stefnur og stíla dægurlagatónlistar með áherslu á popp og rokk í hinum vestræna heimi í samhengi við menningu og sögu tímans. Áhersla er lögð á verklega nálgun, þannig að nemendur kynnist mismunandi sýnidæmum og reyni sig við flutning á bæði sérvöldum lögum auk frumsamins efnis.
Þekkingarviðmið
- helstu tegundum vestrænnar popp- og rokktónlistar
- þekktustu höfundum og flytjendum
- algengustu hljóðfærum, fyrr og nú
- þróun tækja og tækni varðandi hljóðmyndun og hljóðupptöku
- grunnnotkun algengra skala og hljómasamsetninga
Leikniviðmið
- spila og syngja nokkra helstu stíla dægurtónlistar
- tjá sig um mismundi tegundir þessarar tónlistar, geti sett fram hugmyndir sínar og taki virkan þátt í umræðu um efnið
Hæfnisviðmið
- vera skapandi í hugsun
- beita áður framandi leiðum í að skapa tónlist
- vera meðvitaður um þjóðfélagslegt gildi dægurlagatónlistar
- tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um dægurlagatónlist við ólíka viðmælendur
- leysa úr viðfangsefnum, einn eða í samstarfi við aðra
Nánari upplýsingar á námskrá.is