INNF1IS05 - Inngangur að félagsvísindum á starfsbraut

Inngangur að félagsvísindum, starfsbraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Valáfangi í félagsvísindum á starfsbraut þar sem áhersla er lögð á að bæta skilning á félagslegum fyrirbærum sem hafa áhrif á daglegt líf nemenda. Kynntar verða fræðigreinarnar heimspeki, sagnfræði, fornleifafræði, félagsfræði, stjórnmálafræði, mannfræði og sálfræði. Kennsluaðferðir eru meðal annars umræður, verkefnavinna, örfyrirlestrar og gestafyrirlestrar. Markmið er að auka færni nemenda í að tjá sig munnlega og skriflega, fjalla um efni út frá eigin forsendum, hlusta á aðra og taka þátt í samræðu og samstarfi. Jafnframt er stefnt að því að námið auki víðsýni og nemendur tileinki sér jafnréttissjónarmið og umburðarlyndi.

Þekkingarviðmið

  • viðfangsefnum fræðigreina á sviði félags- og hugvísinda
  • aðferðum og vinnubrögðum félagsvísindamanna
  • einkennum mikilvægustu fyrirbæra á sviði þjóðfélagsfræði
  • helstu hugtökum í félagsfræði og sálfræði
  • þeim stofnunum samfélagsins sem mestu skipta í daglegu lífi
  • því hvernig fólk skiptist á skoðunum og ræðir mál til niðurstöðu

Leikniviðmið

  • skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans til dæmis í fjölmiðlum
  • nota allra algengustu hugtök til að fjalla um efni áfangans
  • setja fram skoðanir sínar og rökstyðja þær í samtali við aðra
  • bregðast við skoðunum annarra á málefnalegan hátt

Hæfnisviðmið

  • afla upplýsinga um þau þjóðfélagsmál sem mestu skipta
  • nýta þær upplýsingar sem aflað hefur verið til að gæta eigin hagsmuna
  • setja sig í spor annarra og skilja muninn á eigin hagsmunum og annarra
  • tjá skoðanir sínar og bregðast málefnalega við skoðunum annarra
Nánari upplýsingar á námskrá.is