SKTL2ÞT05 - Heimstónlist: Þjóðtónlist hér, þar og allstaðar

þjóðtónlist

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Skapandi tónlist 5 einingar (Popp og rokk)
Áfanginn miðar að því að opna augu nemenda fyrir framandi þjóðtónlist víðsvegar að úr heiminum í samhengi við menningu og sögu viðkomandi þjóðar. Áhersla er lögð á verklega nálgun þannig að nemendur reyni sig við flutning og sköpun á framandi laglínum, takti og hreyfingum.

Þekkingarviðmið

  • því að þjóðtónlist eigi sér bæði fortíð og nútíð og sé afsprengi þess umhverfis sem hún verður til í
  • hljóðfærum, raddbeitingu og flutningsmáta sem tilheyra tiltekinni þjóðtónlist
  • tónaröðum, taktmynstrum og hreyfingum sem tilheyra tiltekinni þjóðtónlist
  • hugmyndafræði tónlistarmannfræði

Leikniviðmið

  • spila, syngja eða dansa þjóðtónlist af ýmsum toga einn eða í samstarfi við aðra
  • tjá sig um ólíkar tegundir þjóðtónlistar, setja fram hugmyndir sínar og bregðast við viðmælendum

Hæfnisviðmið

  • vera skapandi í hugsun
  • beita áður framandi leiðum í að skapa tónlist eða dans
  • vera meðvitaður um þjóðfélagslegt gildi tónlistar
  • tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um þjóðtónlist við ólíka viðmælendur
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum við tónlistarflutning
Nánari upplýsingar á námskrá.is