LÍOL2BV05 - Líffæra og lífeðlisfræði

bein vöðvar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að náttúruvísindum
Í áfanganum verður farið yfir helstu grunndvallaratriði í líffæra- og lífeðlisfræði. Þau atriði sem verður farið í eru meðal annars jafnvægishneigð, svæðaskipting, áttir, líkamshol, bygging frumunnar, frumulíffærin, flutningur efna yfir himnur, frumuskiptingar, vefi og vefjaflokka. Farið verður einnig yfir eftirfarandi líkamskerfi: Þekjukerfið (lagskipting húðar og líffæri húðar) Beinakerfið (beinmyndun, flokkum beina og beingrindin) Vöðvakerfið (hlutverk, bygging, vöðvasamdráttur, helstu vöðvar og hlutverk þeirra) Taugakerfið (taugafruma, taugaboð, taugaboðefni, taugaflækjur og sympatíska- og parasympatíska taugakerfið, miðtauga- og úttaugakerfið) Skynfærakerfið (skynfærin og hlutverk þeirra) Innkirtlakerfið (kirtlarnir, vakar þeirra og hlutverk)

Þekkingarviðmið

  • grunnbyggingu og starfsemi mannslíkamans
  • starfsemi frumna og vefjagerðar
  • helstu líffærum og líffærakerfum og samspili þeirra í viðhaldi á samvægi í líkamanum
  • byggingu og starfsemi þekju-, beina-, vöðva-, tauga- og innkirtlakerfis

Leikniviðmið

  • útskýra byggingu og hlutverk þekju-, beina-, vöðva-, tauga- og innkirtlakerfis
  • notast við latnesku fræðiheitin

Hæfnisviðmið

  • átta sig á tengslum tveggja eða fleiri líffærakerfa
Nánari upplýsingar á námskrá.is