íþróttaþjálfun
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Tveir umræðutímar eru á önninni, annar fyrir miðannarmat og hinn eftir miðannarmatið. Umræðuefnið er annars vegar fjölstöðuþjálfun (plyometrics training) og hins vegar liðleikaþjálfun. Nemendur fá lesefni og síðan verður umræðutími í kennslustund um efnið. Einnig eiga nemendur að velja a.m.k. 100 bls lesefni sem tengist íþróttum, hreyfingu eða heilsu almennt og eiga nemendur síðan að hafa kynningu á lesefninu í kennslustundum undir lok annarinnar.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi þjálfunar og hvað markviss og skipulögð þjálfun er
- mikilvægi þess að skipuleggja þjálfunin fram í tímann
Leikniviðmið
- gera þjálfunaráætlun sem nær yfir ákveðið tímabil (skólaönnina)
- gera þjálfunardagbók yfir ákveðið tímabil (viku)
Hæfnisviðmið
- setja upp skipulagða þjálfunaráætlun
- leita sér aukinnar þekkingar á viðfangsefninu sínu (íþróttagreininni eða þjálfuninni sinni)
Nánari upplýsingar á námskrá.is