MYNL3LO05 - Lokaverkefni

lokaverkefni

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 10 einingar á 2. þrepi
Áræðni, ímyndunarafl og túlkun. Í áfanganum eiga nemendur að geta sýnt frumkvæði og skapandi nálgun í verkefnum sínum og beitt viðeigandi aðferðum við útfærslu verka. Áfanginn byggir á þeim grunni sem nemendur hafa aflað sér í teikningu og meðferð olíulita þar sem mikil áhersla er lögð á persónulega túlkun. Kennslan er einstaklingsbundin og miðar að því að gera nemendur tilbúna til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Nemendur velja sér verkefni eftir áhugasviði hvers og eins. Þeir vinna markvisst að þróun innan þess viðfangsefnis sem þeir velja sér auk þess að dýpka skilning sinn á miðlum sem þeir hafa áður kynnst eða kynnt sér nýja miðla. Nemendur vinna eigin rannsóknar og sköpunarferlisvinnu undir handleiðslu kennara. Verkið skal uppfylla kröfur um áræðni, ímyndunarafl, listræna framsetningu og túlkun.

Þekkingarviðmið

  • faggrein sinni
  • miðlun sköpunar sinnar
  • samfélagslegu hlutverki myndlistar
  • meðferð og túlkun ólíkra listmiðla
  • rannsóknarvinnu
  • hugmyndavinnu
  • gildi þess að tjá sig um eigin sköpun og sýna
  • vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum sinnar listgreinar og meðferð þeirra
  • leiðum til að miðla þekkingu á fagsviði sínu á fjölbreytilegan hátt

Leikniviðmið

  • nýta sértæka þjálfun sína í líkamsbeitingu, tækni, verklagi, skapandi aðferðum og túlkun í sinni listgrein
  • skipuleggja verkferli í listgrein sinni með ábyrgum og sjálfstæðum hætti
  • sýna frumkvæði og skapandi nálgun í listgrein sinni og beitt viðeigandi aðferðum við útfærslu verka
  • tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigin verkferli og listrænar niðurstöður
  • beita mismunandi miðlunarleiða í sinni listgrein af öryggi og geti valið viðeigandi leið með tilliti til verkefna og aðstæðna hverju sinni

Hæfnisviðmið

  • hagnýta þá sérhæfðu þekkingu, leikni, aðferðir og verkkunnáttu sem hann hefur aflað sér
  • öðlast sjálfstraust og sjálfstæði í þróun hugmynda og sýna áræðni við útfærslu þeirra og túlkun
  • nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við sköpun
  • gera sér grein fyrir fagurfræðilegu, siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki listamannsins
  • greina, tjá sig um og meta eigin verk og annara af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi
  • öðlast hæfni til að meta listrænan styrk sinn og komi auga á hagnýtingu menntunar sinnar
  • geta staðið að opinberri sýningu/tónleikum/viðburði og miðlað þar listrænum styrk sínum
  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is