frjáls málun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 10 einingar á 2. þrepi
Áræðni, ímyndunarafl og túlkun.
Í áfanganum eiga nemendur að geta sýnt frumkvæði og skapandi nálgun í verkefnum sínum og beitt viðeigandi aðferðum við útfærslu verka. Áfanginn byggir á þeim grunni sem nemendur hafa aflað sér í teikningu og meðferð olíulita. Námið byggir á fjölbreyttum verkefnum þar sem mikil áhersla er lögð á persónulega túlkun í meðferð lita og myndefnis.
Kennslan er einstaklingsbundin og miðar að því að gera nemendur tilbúna til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Nemendur kynnast helstu efnum sem notuð eru við olíumálun auk þess sem aðrir miðlar og efni verða skoðuð. Áhersla verður lögð á að nemendur nýti sér teiknikunnáttu sína á skapandi hátt og verður markvisst farið í æfingar sem losa um sköpunargáfuna auk þess að styðja við formskyn og myndbyggingu. Farið verður ítarlegar í blöndun lita og hagnýtingu litasamsetningar á markvissann hátt. Mikil áhersla verður lögð á að nemandi geti þróað eigin hugmynd og útfært í málverk.
Þekkingarviðmið
- faggrein sinni
- miðlun sköpunar sinnar
- samfélagslegu hlutverki myndlistar
- meðferð og túlkun á litum
- skapandi teikningu
- hugmyndavinnu
- gildi þess að tjá sig um eigin sköpun og sýna
- vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum sinnar listgreinar og meðferð þeirra
- leiðum til að miðla þekkingu á fagsviði sínu á fjölbreytilegan hátt
Leikniviðmið
- nýta sértæka þjálfun sína í líkamsbeitingu, tækni, verklagi, skapandi aðferðum og túlkun í sinni listgrein
- skipuleggja verkferli í listgrein sinni með ábyrgum og sjálfstæðum hætti
- sýna frumkvæði og skapandi nálgun í listgrein sinni og beitt viðeigandi aðferðum við útfærslu verka
- tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigin verkferli og listrænar niðurstöður
- beita mismunandi miðlunarleiða í sinni listgrein af öryggi og geti valið viðeigandi leið með tilliti til verkefna og aðstæðna hverju sinni
Hæfnisviðmið
- hagnýta þá sérhæfðu þekkingu, leikni, aðferðir og verkkunnáttu sem hann hefur aflað sér
- öðlast sjálfstraust og sjálfstæði í þróun hugmynda og sýna áræðni við útfærslu þeirra og túlkun
- nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við sköpun
- gera sér grein fyrir fagurfræðilegu, siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki listamannsins
- greina, tjá sig um og meta eigin verk og annara af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi
- öðlast hæfni til að meta listrænan styrk sinn og komi auga á hagnýtingu menntunar sinnar
- geta staðið að opinberri sýningu/tónleikum/viðburði og miðlað þar listrænum styrk sínum
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is