LJÓS2LS05 - Grunnáfangi í listljósmyndun

listljósmyndun, listrænar stúdíómyndir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að listum
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðist dýpri og sérhæfðari þekkingu á listljósmyndun og geti nýtt hana í öllum færniþáttum bæði tæknilega og listrænt við eigin listsköpun. Farið er í er fjölbreytt efni um listljósmyndun með lestri og myndböndum. Fjallað er um listljósmyndara innlenda sem erlenda og þeir greindir með tilliti til stefnu og strauma listgreinarinnar. Verk eru borin saman, flokkuð og rædd. Nemendur spreyta sig síðan á því að túlka í ljósmyndum og orðum eigin verk og annarra ásamt því að setja upp sýningu með eigin verkum. Áhersla er lögð á listrænar portettmyndatökur bæði í stúdíói og umhverfisportrett. Myndatökur af uppstilltum hlutum og listaverkum. Sérstök áhersla á beitingu lýsingar og hvernig ljósið málar viðfangsefnin.

Þekkingarviðmið

  • hvernig hægt er að beita myndavél til að skapa listljósmynd
  • myndbyggingu, gullinsniði, formi, áferð, línum og litum
  • fjölbreyttum orðaforða um listljósmyndum til að tjá skoðanir sínar og rökstyðja þær
  • mismunandi stefnum og straumum í listljósmyndun, geta borið saman verk og aðgreint þau
  • þeirri ábyrgð sem felst í að taka, birta og vinna listljósmyndir
  • geta miðlað skriflega og með listljósmyndum eigin hugmyndum
  • myndatöku í með stúdíóljósum inni og úti með mismunandi búnaði
  • mismunandi viðbótarlýsingu
  • þekktum listljósmyndum sem tengjast efni áfangans
  • vinnslu listljósmynda af fólki og hlutum
  • stilla upp fyrir listræna ljósmyndatöku með stúdíóljósum
  • listljósmyndun til að undirbúa frekara nám.

Leikniviðmið

  • taka listrænar ljósmyndir með fjölbreyttum lýsingaraðferðum
  • tjá sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt um listljósmyndun og listljósmyndir
  • skipuleggja vinnuferli við undirbúning, framkvæmd og úrvinnslu listljósmyndaseríu eftir eigin hugmynd
  • velja verkfæri og aðferðir við að skapa listljósmyndir með mismunandi tjáningarformum
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í grunn vinnubrögðum listljósmyndunar
  • taka þátt í umræðum um listljósmyndir.

Hæfnisviðmið

  • tjá skoðanir sínar á listljósmyndum
  • skýra verklag tengt skilgreindu starfsumhverfi listljósmyndunar á ábyrgan, sjálfstæðan og skýran hátt
  • bera virðingu fyrir grundvallarreglum um meðferð listljósmynda og býr yfir ábyrgð gagnvart starfi listljósmyndarans og starfsumhverfis hans
  • skapa skýra sjálfsmynd og gerir sér grein fyrir nýjum tækifærum í listljósmyndun
  • geta metið eigin þekkingu og leikni ásamt því aða gera sér grein fyrir hvernig frekara nám eflir hæfni og eykur möguleika
  • þekkja sjálfan sig sem listamann
  • vinna á skapandi hátt við listiðkun sína
  • sýna verk sín á listsýningu og hafa samskipti við gesti um verk sín
  • tengja þekkingu sína og leikni við starfsumhverfi listljósmyndunar og daglegt líf
Nánari upplýsingar á námskrá.is