fornbókmenntir, málfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf eða áfangi á 1. þrepi
Í þessum áfanga vinna nemendur einkum með íslenskar fornbókmenntir þar sem eddukvæði og Læxdæla saga verða meginviðfangsefni áfangans ásamt kynningu á dróttkvæðum. Einnig verða sérstök verkefni þar sem lögð er áhersla á að vinna með margvíslegar heimildir á faglegan hátt.
Ritun: Nemendur eru þjálfaðir í að vinna úr lesefni áfangans með fjölbreyttum ritunarverkefnum; bæði með hópverkefnum sem og einstaklingsverkefnum.
Bókmenntir og læsi: Nemendur kynna sér þann heim og hugmyndafræði sem finna má í íslenskum og norrænum fornbókmenntum með því að lesa og vinna verkefni úr lesefni áfangans.
Málfræði: Farið er í grundvallaratriði setningafræði og fjallað um ýmislegt sem tengist málnotkun.
Þekkingarviðmið
- íslenskum og norrænum fornbókmenntum
- helstu hugtökum í ritgerðasmíð
- grundvallarvinnubrögðum við skrif heimildaritgerða
- málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli
Leikniviðmið
- rita rökfærsluritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
- nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
- nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til þess að efla eigin málfærni
- draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir á heiðarlegan hátt
- lesa sér til gagns og gamans nytjatexta og bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
Hæfnisviðmið
- vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
- beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
- styrkja eigin málfærni og nám í erlendum tungumálum, til dæmis með því að nýta málfræðiupplýsingar í handbókum
- taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
- túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
Nánari upplýsingar á námskrá.is