DANS2MS05 - Menning og samfélag

menning, samfélag

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf eða áfangi á 1. þrepi
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist dýpri og sérhæfðari orðaforða en áður og geti nýtt sér hann í öllum færniþáttum. Þeir eiga að geta tjáð sig lipurt bæði munnlega og skriflega. Notaðir eru fjölbreyttir textar og kvikmyndir til þess að nemendur kynnist mismunandi hlutum dansks samfélags, menningu þess og venjum og þjálfi bæði skilning sinn á bæði töluðu og skrifuðu máli. Nemendur kynnast einnig öðrum norrænum tungumálum. Meginmarkmið áfangans er að þjálfa nemendur í að beita þeirri kunnáttu sem þeir áður hafa tileinkað sér til þess að kynna sér fjölbreytt efni tengd dönsku samfélagi og menningu með ýmsum aðferðum. Áhersla er á að kynna nemendum mismunandi rithöfunda og ritstíla. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og að nemendur taki ábyrgð á því að skipuleggja vinnu sína og læri að nýta sér þau hjálpartæki sem í boði eru, td. orðabækur bæði á riti og neti.

Þekkingarviðmið

  • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
  • skyldleika dönskunnar við íslensku og önnur norræn tungumál
  • helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
  • notkun hjálpargagna, meðal annars orðabóka, leiðréttingaforrita auk ýmissa hjálpargagna á netinu
  • danska málkerfinu til markvissar notkunar, bæði skriflega og munnleg

Leikniviðmið

  • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
  • skyldleika dönskunnar við íslensku og önnur norræn tungumál
  • helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
  • notkun hjálpargagna, meðal annars orðabóka, leiðréttingaforrita auk ýmissa hjálpargagna á netinu
  • danska málkerfinu til markvissar notkunar, bæði skriflega og munnleg

Hæfnisviðmið

  • skilja daglegt mál svo sem samræður, kvikmyndir og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér
  • tileinka sér innihald ritaðs texta og nýta það á mismunandi hátt
  • lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt og geta brugðist við og tjáð skoðanir sínar um efni þeirra
  • lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu texta
  • tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum við ólíka viðmælendur
  • skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og bregðast við viðmælendum.
  • tjá sig skýrt og lipurlega fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem nemandinn hefur kynnt sér
  • skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
  • skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
  • meta eigið vinnuframlag
Nánari upplýsingar á námskrá.is