LÝÐH1GB03 - Lýðheilsa: bóklegt og verklegt

grunnáfangi bóklegt

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Bóklegi hlutinn: Fjallað verður um heilsu og hvað heilbrigður lífstíll sé. Fjallað verður almennt um hreyfingu og mikilvægi hennar hjá öllum aldurshópum, þó verður sérstök áhersla á framhaldsskólaaldurinn. Farið verður yfir þrjú algengustu þjálfunarformin (þol, styrkur og liðleiki) og hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers forms skoðuð. Farið verður yfir áhrif vímuefna (tóbak, áfengis og lyfja) á heilsu og líkamlegt form einstaklinga. Farið er yfir uppbyggingu á hreyfingarlotu (einni stakri æfingu) með áherslu á upphitun og niðurlags og áhrifum þeirra á líkamann. Verklegi hlutinn: Kennslan fer fram utandyra og inni í íþróttasal. Tímarnir verða fjölbreyttir þar sem farið verður í ýmsa leiki ásamt hinum ýmsu íþróttagreinum. Einnig verður farið í þau þjálfunarform sem tekin eru fyrir í bóklegu kennslunni og nemendur fá tækifæri til að prufa hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers þjálfunarforms.

Þekkingarviðmið

  • hvað almennt heilbrigði er
  • mikilvægi hreyfingar hjá sínum aldurshópi
  • góðs lífsstíls sem inniheldur hreyfingu
  • mikilvægi upphitunar fyrir áreynslu og niðurlags eftir áreynslu
  • fjölbreyttum þjálfunaraðferðum innan þols, styrks og liðleika
  • uppbyggingu hreyfingarloftugerðar (tímaseðlagerð)

Leikniviðmið

  • iðka fjölbreytta grunnþjálfun og beita mismunandi þjálfunaraðferðum til þess
  • nota almenna og sérhæfða upphitun
  • finna púls og nota púlsklukku rétt
  • búa til skipulagðan og áhugaverðan tímaseðil

Hæfnisviðmið

  • nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
  • nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu í daglegt líf eftir bestu getu
  • viðhalda eða bæta eigið líkamshreysti
Nánari upplýsingar á námskrá.is