STÆR2VI05 - Föll, hornaföll og vigrar

vigrar hornaföll föll

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf eða áfangi á 1. þrepi
Lotubundin föll, hornaföll og vigra, tengsl algebru og rúmfræði, jöfnu hrings og sporbaugs, hornafallareglur. yrðingarökfræði og talningarfræði.

Þekkingarviðmið

  • lotubundnum föllum og hornaföllum
  • sönnunum á helstu reglum í námsefninu
  • undirstöðureglum talningarfræðinnar, tvíliðustuðlum og Pascalsþríhyrningnum jöfnum hrings og sporbaugs
  • hornafræði þríhyrninga, stefnuhorni línu, sínusreglu, kósínusreglu og flatarmálsreglu
  • almennri skilgreiningu hornafalla, bogamáli og umritunarreglum hornafalla
  • vigurreikningi í sléttum fleti, summu, mismun og innfeldi tveggja vigra og lengd vigurs, horni milli vigra, samsíða og hornréttum vigrum
  • rétthyrndum hnitum og pólhnitum

Leikniviðmið

  • sanna reglur og fylgja röksemdafærslum
  • reikna með vigrum
  • meðhöndla hornaföll og hornafallareglur
  • leysa talningarfræðileg vandamál
  • meðhöndla lotubundin föll og gröf þeirra, finna t. d. lotu og útslag

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
  • Takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is