STÆR2JM05 - Tölur, mengi, jöfnur, rökfræði og talningarfræði

tölur mengi jöfnur rökfræði talningarfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf eða áfangi á 1. þrepi
Tölur, mengi, 1. og 2. stigs jöfnur, rökfræði og talningarfræði. Notkun vasareiknis og forrita við lausn stærðfræðilegra verkefna.

Þekkingarviðmið

  • deilanleika og frumþáttun talna, lotutugabrotum, náttúrulegum tölum, heilum tölum, ræðum tölum, rauntölum og bilum á rauntalnaásnum
  • undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og jöfnum, 1. og 2. stigs einföldum mengjareikningi
  • einfaldri talningarfræði og líkindareikningi í endanlegu líkindarúmi með jafndreifðum líkum
  • grunnatriðum töflureiknis og einhvers sérhæfðs stærðfræðiforrits
  • tugveldarithætti talna og staðalformi, mælingaskekkju
  • yrðingarökfræði og sanntöflum
  • fallhugtakinu, formengi falls og varpmengi

Leikniviðmið

  • frumþátta tölur, breyta lotutugabrotum í almenn brot og fjalla um talnamengi af kunnáttu
  • nota undirstöðureglur talna- og bókstafareiknings til einföldunar stærðtákna og útreiknings með vasareikni
  • nota mengi og Vennmyndir til að leysa verkefni
  • meta eða finna líkur á ýmsu sem fyrir kemur í daglegu lífi
  • nota forrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni
  • nýta sér tugveldarithátt og mælinákvæmni til að bera saman tölur
  • setja upp sanntöflu fyrir samsettar yrðingar

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
  • Takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is