MARK2AM05 - Almenn markaðsfræði

almenn markaðsfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að félagsvísindum
Áfanginn miðar að því að fara yfir grundvallarhugtök sem tengjast markaðsfræði og hvernig hugmyndafræðin er notuð til að markaðssetja vörur og þjónustu. Sérstaklega er farið í mikilvægi markaðsstarfs í síbreytilegu umhverfi og afstöðu fyrirtækja til ýmissa þátta í rekstri. Markmiðið er að nemendur kynnist hugmyndafræði markaðsfræði með sérstöku tilliti til ferðaþjónustu, menningarviðburða og lista. Þannig að nemendur geti tengt saman hugmyndafræði markaðsfræðinnar og aðferðafræði við markaðssetningu ferðaþjónustu, menningarviðburða og lista og lært hagnýtar aðferðir við notkun markaðsfræði við sölu, verðlagningu, vöruþróun og kynningu vara/þjónustu í ferðaþjónustu, menningu og listum. Ætlunin er að nemendur verði svolítið sjálflægir í þessari vinnu og huga að því hvernig þeir geti nýtt markaðsfræðina til að kynna sjálfan sig , vinnu sína eða hugmyndir. Að nemandinn tileinki sér gagnrýna og skapandi lausnarhugsun og öðlist með því færni í að miðla eigin hugmyndum og skoðunum.

Þekkingarviðmið

  • tilgangi og hugmyndafræði markaðsfræðinnar
  • þýðingu markaðsstarfs fyrir fyrirtæki og samfélag
  • helstu þáttum almenns markaðsstarfs
  • helstu hugtökum og hugmyndum varðandi vöru og vöruþróun
  • helstu samkeppnisformum og mikilvægustu atriðum samkeppnisgreiningar
  • helstu hugmyndum um kaupvenjur á neytendamarkaði og fyrirtækjamarkaði mikilvægi markaðsáætlana
  • mismunandi greiningartækja og vinnubragða við áætlanagerð
  • helstu markaðsmiðlum í nær -og fjærsamfélagi
  • mikilvægi á góðri skipulagningu og skrásetningu við framkvæmd verkefna
  • sjálfum sér, hugsun og verklagi

Leikniviðmið

  • virkja hugmyndaflugið
  • nýta sér hugmyndafræði og aðferðafræði markaðsfræðinnar við markaðssetningu á eign verkum og hugmyndum
  • kynna eigin hugmyndir og verkefni
  • tjá sig um eigin verk og annarra fyrir framan samnemendur
  • sinna hópastarfi sem meðal annars felur í sér samvinnu, virðingu, jákvæð samskipti, stjórnun, ábyrgð og ákvarðanatöku

Hæfnisviðmið

  • gera markaðsáætlun sem hentar þeirra verkefni
  • gera kynningaráætlun fyrir eigið verkefni
  • tileinka sér skapandi lausnarhugsun sem hægt er að nýta bæði í leik og starfi
  • öðlast aukna trú á sjálfum sér í skapandi vinnu og þora að stíga út fyrir þægindarammann og vinna með eigin hugmyndir á sjálfstæðan og persónulegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is