Tyrklandsfarar í góðu yfirlæti

Istanbúl mynd SMH
Istanbúl mynd SMH

Sjö manna hópur úr MTR dvelur þessa viku í góðu yfirlæti í Istanbúl. Tilgangur ferðarinnar er að heimsækja Ömer Cam drengjaskólann í Asíuhluta borgarinnar. Einnig hefur hópurinn farið í skoðunarferðir, m.a. í gömlu Istanbúl og til borgarinnar Bursa í Anatólíu. Á morgun verður siglt um Bosporussundið milli Marmarahafs og Svartahafs og á laugardag heldur hópurinn heim með nýja reynslu í farteskinu. Myndir