Nemendur í Tallin

Unnið með nemendum frá Eistlandi og Lettlandi. Ljósm. SMH.
Unnið með nemendum frá Eistlandi og Lettlandi. Ljósm. SMH.

Fimm nemendur eru nú staddir í Tallin í Eistlandi og er það fyrsta utanlandsferð nemenda síðan heimsfaraldurinn brast á. Þeir taka þátt í Nordplus verkefni sem nefnist DRIL - Digital Routs for Intelligent Learning. Það passar því vel við hvernig námi og kennslu er háttað í MTR. Verkefnið er í samstarfi við tvo Rússneskumælandi skóla í Eistlandi og Lettlandi. 

Strákarnir náðu að komast út áður en óveðrið brast á og eru í góðu yfirlæti i sól og blíðu í Tallin.