Starfsbraut er einkum ætluð nemendum sem hafa lokið grunnskóla með sérsniðnu námsefni. Námið er einstaklingsmiðað og
sveigjanlegt.
Nám og kennsla á starfsbraut er skipulagt með tilliti til þess nemendahóps sem innritast á brautina á hverjum tíma. Áhersla er á að auka
félagsleg samskipti nemenda og undirbúa þá undir áframhaldandi nám við hæfi og/eða þátttöku á vinnumarkaði.
Hæfnimarkmið starfsbrautar eru að nemendur:
- fái einstaklingsmiðuð námstækifæri
- auki sjálfstraust sitt, sjálfstæði og samskiptahæfni til daglegra athafna
- auki möguleika sína til áframhaldandi náms við hæfi
- öðlist fjölbreytta reynslu og kynnist möguleikum og margbreytileika íslenskrar menningar
- fái tækifæri til að stunda nám með ófötluðum nemendum eins og kostur er
- fái tækifæri til að tengja saman nám og starfsþjálfun – í skóla og á vinnustað og öðlist vinnufærni eftir því sem kostur er
- fái tækifæri til þátttöku á vinnumarkaði að loknu námi
| Starfsbraut | ||||||||||
| Kjarni (K) | Skst | 1. þrep | Ein | |||||||
| Íslenska | ÍSL | 1AS05 | 1BS05 | 1CS05 | 1DS05 | 1ES05 |
|
|
|
25 |
| Enska | ENS | 1AS05 | 1BS05 |
|
|
|
|
|
|
10 |
| Stærðfræði | STÆ | 1AS05 | 1BS05 | 1CS05 |
|
|
|
|
|
15 |
| Inngangur að félagsvísindum | IFÉ | 1AS05 |
|
|
|
|
|
|
|
5 |
| Inngangur að listum | ILI | 1AS05 |
|
|
|
|
|
|
|
5 |
| Inngangur að náttúruvísindum | INÁ | 1AS05 |
|
|
|
|
|
|
|
5 |
| Lýðheilsa | LÝÐ | 1AS01 | 1BS01 | 1CS01 | 1DS01 | 1ES01 | 1FS01 | 1GS01 | 1HS01 | 8 |
| Tröllaskagi | TRÖ | 1AS05 |
|
|
|
|
|
|
|
5 |
| Upplýsingatækni dreifnáms | UTD | 1AS05 |
|
|
|
|
|
|
|
5 |
| Fjöldi eininga | 83 | |||||||||
| Brautarkjarni (BK) |
|
|||||||||
| Tilveran | TIL | 1AS05 | 1BS05 | 1CS05 | 1DS05 | 1ES05 | 1FS05 | 1GS05 |
|
35 |
| Starfsnám á vinnustað | STV | 1AS05 | 1BS05 | 1CS05 | 1DS05 | 1ES05 | 1FS05 | 1GS06 | 1HS06 | 42 |
| Fjöldi eininga | 77 | |||||||||
| Val (V) |
|
|||||||||
| Valáfangar | 40 | 40 | ||||||||
| Fjöldi eininga | 40 | |||||||||
| Alls: | 200 | |||||||||
| Þegar talað er um einingar er átt við nýja skilgreiningu á einingum samkvæmt nýjum lögum um framhaldsskóla (nr. 92/2008). | ||||||||||
| Seinast breytt 31. október 2011 | ||||||||||



Sköpun 


