Listabraut

Listabrautin skiptist í myndlist, listljósmyndun og tónlist. Tónlistarbrautin er kennd í samvinnu við Tónskóla Fjallabyggðar og geta nemendur eingöngu

Listabraut

Listabrautin skiptist í myndlist, listljósmyndun og tónlist. Tónlistarbrautin er kennd í samvinnu við Tónskóla Fjallabyggðar og geta nemendur eingöngu innritast á brautina gegn staðfestingu þaðan.

Hæfnimarkmið listabrautar eru:
Að nemendur
  • geti hagnýtt þá sérhæfðu þekkingu, leikni, aðferðir og verkkunnáttu sem hann hefur aflað sér.
  • hafi öðlast sjálfstraust og sjálfstæði í þróun hugmynda og sýni áræðni við útfærslu þeirra og túlkun.
  • noti ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við sköpun/flutning verka.
  • geri sér grein fyrir fagurfræðilegu, siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki listamannsins.
  • séu fær um að greina, tjá sig um og meta eigin verk og annara af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi.
  • geti fjallað um listgrein sína og sköpun/túlkun og staðsett hana í menningarlegu og listsögulegu samhengi.
  • hafi öðlast hæfni til að meta listrænan styrk sinn og komi auga á hagnýtingu menntunar sinnar.
  • geti staðið að opinberri sýningu/tónleikum/viðburði og miðlað þar listrænum styrk sínum.
  • séu meðvitaðir um umhverfi sitt, hafi lært að njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
  • séu vel undirbúnir fyrir frekara nám í ólíkum listgreinum á næsta skólastigi

Menntaskólinn á Tröllaskaga
Ægisgötu 13
625 Ólafsfirði

Sími 460 4240
Netfang: mtr@mtr.is
kt. 690310-0820

Skrifstofa skólans er opin alla
virka daga frá 8:00 til 16:00

Hafðu samband! 

Svæði

Frumkvæði    Sköpun    Áræði